Lýsing
RX-3
Þessir litlu gólfhátalarar, sem eru hannaðir og samsettir frá grunni af Rega í Englandi, koma allri tónlistinni til skila á áreynslulausan máta. Hátalararnir eru handsmíðaðir úr íhlutum sem eru framleiddir af Rega sjálfum. Bassinn er djúpur og þéttur, en bassakeilurnar eru hannaðar og smíðaðar af Rega líkt og mið/bassi og hátíðni driverinn. Þetta er niðurstaða áralangra tilrauna og þróunar hjá Rega, en ólíkt mörgum öðrum framleiðendum eru driverarnir framleiddir innanhús til að tryggja samfellu í hljómnum.
Nettir en stórir
RX-3 eru, líkt og RX-1, afurð áratuga langra rannsókna í hljómtækjaheiminum á því hvernig hátalarar geta hljómað sem best. Niðurstaðan er ekki framúrstefnuleg, gæði íhluta og smíði crossover er aðalatriðið ef skila á sem raunverulegustum hljómi til hlustandans. Þar sem tíðnisviðið skarast á við bassa/miðju og hátíðni er fullkomin samfella og hlustandinn getur einbeitt sér að tónlistinni frekar en hátölurunum.
Hátalararnir eru mjög auðveldir í uppsetningu. Þeir hljóma best ef þeir vísa beint fram, en ef langt er á milli þeirra má ná góðum árangri með því að láta þá beinast ögn að hlustandanum. Þetta eru hátalarar í sinni einföldustu mynd með stóra og áreynslulausa hljóðmynd, þéttan og djúpan bassa og mjög tæra hátíðni.
Boxin eru smíðuð úr 18mm MDF og rækilega stífð að innanverðu og crossoverið er eins einfalt og hægt er en með bestu mögulegu íhlutum. Hátalararnir eru léttir í keyrslu en líkt og með alla aðra hátalara finnst þeim ekki leiðinlegt að fá afl til að syngja eftir. Þeir vinna sitt verk með bæði ódýrum og dýrum mögnurum, litlum og stórum, best er að tónlistin sé í lagi.
Fáðu stóran hljóm úr nettum hátölurum.
- System: 2.5 way
- Enclosure Design: Band pass enclosure, Front-ported
- Sensitivity: 89 dB
- Impedance: Nominal 6 Ohms
- Power Handling: 100W per channel (compatible with 30-500W amplification)
- Drivers:
- High Frequency: Rega ZRR tweeter
- Mid/Bass: Rega DX-125 (doped cone)
- Side Bass Driver: Rega RR125.8
- Dimensions (H x W x D): 80 x 16 x 25,8 cm
- Weight: 11.5 Kg (each)











